Námskeið – BRC staðallinn – kröfur – úttektir
26/10/2016, 09:00 - 16:00
Námskeið fyrir þá sem nú þegar hafa vottun samkvæmt BRC staðli og þá sem hafa í hyggju að fá vottun.
Farið verður yfir helstu kröfur staðalsins og hvernig megi uppfylla þær á einfaldan hátt. Einnig er farið yfir helstu breytingar milli útgáfu 6 og 7 í matvælaöryggisstaðlinum.
Mikið er lagt upp úr umræðum og verkefnavinnu.
Tími: 26. október 2016 klukkan 09:00-16:00
Staður: Matvælaskólinn hjá Sýni, Lynghálsi 3, 110 Reykjavík (gengið inn á hægri gafli hússins)
Verð: 60.000 kr.-*
- Innifalið í verði eru námskeiðsgögn, hádegismatur og léttar veitingar
- Munið eftir styrkjunum úr fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna!!
*Tilkynna þarf forföll a.m.k. þremur virkum dögum fyrir námskeið á netfangið matvaelaskolinn@syni.is. Berist afskráning of seint eða alls ekki áskilur Rannsóknarþjónustan Sýni sér rétt til að innheimta námskeiðsgjöld að fullu.
Map Unavailable