HACCP grunnnámskeið á Akureyri 21.-23. febrúar 2018
Gæði og öryggi alla leið
Með áherslu á nýja skoðunarhandbók frá MAST.
Námskeið fyrir alla þá sem meðhöndla matvæli á einn eða annan hátt
Áhersla er lögð á að þátttakendur skilji grundvallaratriði HACCP gæðakerfisins og geti innleitt það í sínum fyrirtækjum. Mikið er lagt upp úr verkefnavinnu. Þátttakendur vinna m.a. verkefni úr eigin gæðakerfum.
Efni námskeiðs:
- Öryggi í gegnum alla “fæðukeðjuna”: Frumframleiðendur, matvælaframleiðendur, dreifingarfyrirtæki, smásalar, tækjaframleiðendur, framleiðendur umbúða og hreinsiefna.
- Staðlar – stutt kynning (t.d ISO staðlar, IFS staðall, BRC staðall). Frábær hjálpartæki fyrir matvælafyrirtæki sem vilja vera í fremstu röð hvað varðar gæði og öryggi. Markmið, framtíðarsýn og skýr gæðastefna skiptir höfuðmáli fyrir fyrirtæki í fararbroddi.
- Fyrirbyggjandi aðgerðir – GMP (góðir framleiðsluhættir) þurfa að vera mjög virkar áður en HACCP kerfi er komið á t.d. virk hreinlætisáætlun, teikningar yfir flæði vöru og starfsfólks, kröfur til birgja, þjálfun starfsfólks, fyrirbyggjandi viðhald og hitastigsstjórnun.
- HACCP gæðakerfið. Hvað er HACCP? Hvernig komum við því á og hvernig innleiðum við það? Hvernig getur HACCP kerfið hjálpað til að auka öryggi matvæla? Hættur, hættugreining, mikilvægir stýristaðir, eftirlit, vikmörk, úrbætur.
- Yfirlit yfir helstu hættur í matvælum s.s sýkla, sníkjudýr, histamín, þungmálma, díoxín, ofnæmisvaldandi efni, aðskotahluti o.fl.
- Kvartanir – Hvernig vinnum við úr kvörtunum? Rekjanleiki – eitt skref áfram og eitt skref aftur – hvað þýðir það í framkvæmd. Innköllun – prufuinnköllun.
- Sannprófun á gæðakerfum – dagleg, vikuleg og árleg, til að tryggja að ávallt sé verið að vinna eftir HACCP gæðakerfinu.
Dags.: 21.-23. febrúar 2018
kl.: 10-16 fyrsta daginn, 9-15 hina dagana
Staður: Akureyri, nánari staðsetning auglýst síðar.
Verð: 120.000 kr.- *
Skráning: á heimasíðu http://syni.is/is/skraning-a-namskeid/
Nánari upplýsingar í síma 512-3389
-Innifalið í verði eru námskeiðsgögn, hádegismatur og léttar veitingar
-Munið eftir styrkjunum úr fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna!!
* Tilkynna þarf forföll a.m.k. 2 virkum dögum fyrir námskeið á netfangið matvaelaskolinn@syni.is. Berist afskráning of seint eða alls ekki áskilur Sýni sér rétt til að innheimta námskeiðsgjöld að fullu. Greiðsluseðill verður sendur á skráðan greiðanda að skráningu lokinni og skal reikningurinn greiðast eigi síðar en tveimur virkum dögum fyrir upphaf námskeiðs. Ef ekki næst lágmarks þátttaka á námskeiðið áskilur Matvælaskólinn sér þann rétt að fresta eða aflýsa námskeiðinu með minnst sólarhrings fyrirvara.
Skildu eftir svar